Jarðafl tekur að sér fjölbreytt verkefni í jarðframkvæmdum og vélavinnu. Á veturna er sjómokstur, snjóblástur, söltun og holuviðgerðir á götum og plönum, í Reykjavík, í aðalhlutverki. Á vorin og langt fram eftir hausti eru jarðframkvæmdir s.s. drenlagnir í kringum byggingar, múrbrot og sögun, trjáfellingar og ýmsar aðrar garðframkvæmdir í fyrirrúmi. Jarðafl leigir einnig út hinar ýmsu vélar til jarðframkvæmda.